Fjölbreytt og skemmtilegt efni í þessari gæðastund og þökkum við þeim sem komu. Nokkrar myndir má finna hér.
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands stóð fyrir gæðastund á Greifanum síðastliðinn föstudag og átti þar notalega stund. Rætt var um gæðastjórnunarkerfi sem Elfar Alfreðsson bjó til hjá Berserker solutions og er sniðið að byggingariðnaðinum. Guðný Helga Kristjánsdóttir gæðastjóri hjá líftæknifyrirtækinu Primex fjallaði einnig um vottanir fyrirtækisins og gæðamál þess.
Fjölbreytt og skemmtilegt efni í þessari gæðastund og þökkum við þeim sem komu. Nokkrar myndir má finna hér.
0 Comments
Elfar Alfreðsson mun kynna gæðastjórnunarkerfi sem Berserker solutions ehf. hefur verið að vinna að seinustu 2 ár. Gæðastjórnunarkerfið er sniðið að byggingariðnaðinum þar sem áherslan er á einfalt utanumhald í kringum verk.
Guðný gæðastjóri Primex mun halda erindi um gæðamál innan Primex en Primex hefur verið með vottun frá ISO 22000 og TÚN-náttúruafurðir frá 2010, árið 2014 fékk Primex HALAL vottun. Á matseðli dagsins verður grísapurusteik ásamt meðlæti. Við mælum með því að mæta kl. 11:50 – 11:55 þannig að fólki nái að koma sér fyrir og panta mat fyrir klukkan 12. Kaffi í boði félagsins. Stjórnin skorar á meðlimi Gæðastjórnunarfélagsins að slá nokkrar flugur í einu höggi, borða góðan mat, læra eitthvað nýtt og síðast en ekki síst sýna sig og sjá aðra. Sjáumst hress! Kveðja stjórnin Október kominn og farinn
Lítið bar á viðburðum á vegum GSFN í október. Reynt var að skipuleggja hádegis gæðastund á Greifanum sem átti að höfða til iðn- og byggingarstéttarinnar. Illa gekk að fá einstaklinga innan stéttarinnar til þess að koma og halda erindi og varð því ekkert úr viðburðinum. Í framhaldi tók stjórnin þá ákvörðun að senda ekki út fréttabréf októbermánaðar. „Ef þú hefur ekkert að segja skaltu þegja :) “ Á döfinni Elfar Alfreðsson tók boði okkur um að kynna gæðastjórnunarkerfi sem Berserker solutions ehf. hefur verið að vinna að seinustu 2 ár. Gæðastjórnunarkerfið er sniðið að byggingariðnaðinum þar sem áherslan er á einfalt utanumhald í kringum verk. Einnig hefur Guðný gæðastjóri Primex samþykkt að halda erindi um gæðamál innan Primex en Primex hefur verið með vottun frá ISO 22000 og TÚN-náttúruafurðir frá 2010, árið 2014 fékk Primex HALAL vottun. Gæðastundin verður haldin föstudaginn 25. nóv. kl. 12:00 á Greifanum. Stjórnin skorar á meðlimi Gæðastjórnunarfélagsins að slá nokkrar flugur í einu höggi, borða góðan mat, læra eitthvað nýtt og síðast en ekki síst sýna sig og sjá aðra. Fundarboð verða send á meðlimi félagsins í næstu viku. Hinar og þessar hugmyndir Stjórnin er í stöðugri hugmyndarvinnu hvað varðar námskeið, erindi og heimsóknir. Við viljum reyna að vera sem fjölbreyttust og þannig að ná til flestra stétta. Hugmyndir sem hafa komið til umræðu eru: vægi gæðamála í pólitík, gæðastjórnun í ferðaþjónustu og hvernig öryggis- og umhverfisstefnur samtvinnast gæðastefnum. Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst fróðlegt, sniðugt og/eða skemmtilegt. Hafðu samband Við hvetjum þig til að hafa samband ef þú ert með hugmynd að atburði, ábendingu eða vilt koma einhverju á framfæri. Pósthólfið okkar er [email protected] Jafnframt bendum við á heimasíðu félagsins (http://gaedastjornun.weebly.com/) og Facebook síðuna Gæðastjórnunarfélag Norðurlands. |
Archives
July 2019
Categories |