Samþykktir
Nafn félags og kennitala
1. gr.
Félagið heitir Gæðastjórnunarfélag Norðurlands og hefur kennitöluna 520813-1280.
Tilgangur og markmið
2. gr.
Tilgangur félagsins er að efla tengslanet þeirra er koma að gæðamálum fyrirtækja og stofnana og stuðla að aukinni fræðslu um gæðamál hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu. Markmið félagsins er að stuðla að bættri gæðastjórnun á félagssvæði sínu.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með reglulegum félagsfundum, kynningum, námskeiðum og öðru sem stutt getur markmið félagsins.
Félagsaðild, starfsár o.fl.
4. gr.
Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar á Norðurlandi geta orðið aðilar að félaginu, óháð atvinnustarfsemi. Hver aðildarfélagi tilnefnir fulltrúa sinn á aðalfund og fer hann með atkvæði hans. .
5. gr.
Starfs- og reikningsár félagsins er frá maí til og með apríl.
Aðalfundur, stjórn félagsins, árgjald o.fl.
6. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda fyrir lok maímánaðar ár hvert og skal hann auglýstur með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal stuttlega geta þeirra mála sem tekin verða fyrir á fundinum. Aðalfundur er lögmætur, sé löglega til hans boðað.
Starfsmenn aðildarfélaga geta verið þátttakendur á aðalfundi. Einfaldur meirihluti mættra fulltrúa ræður úrslitum mála en hver aðildarfélagi hefur eitt atkvæði við atkvæðagreiðslu í félaginu.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fulltrúum frá fimm aðildarfélögum , kjörnum á aðalfundi. Að auki skal kjósa einn fulltrúa sem varamann. Ef atkvæði eru jöfn skal hlutkesti ráða úrslitum. Leitast skal við að halda kynjahlutfalli sem jöfnustu innan stjórnar. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn og skal meginreglan vera sú að eigi fleiri en þrír láti af störfum á sama tíma. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi með því að kjósa formann, gjaldkera og ritara. Í upphafi hvers starfsárs skal stjórn semja starfsáætlun fyrir komandi starfsár.
Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.
Á aðalfundi skal einnig kjósa tvo skoðunarmenn til tveggja ára í senn, þó þannig að árlega gangi annar þeirra út og nýr komi inn.
8. gr.
Félagsgjöld skulu greidd árlega til félagsins. Stjórn félagsins getur tekið af félagaskrá þá sem skulda árgjald fyrir tvö ár enda hafi þeir áður verið skriflega krafðir um greiðslu og þeim kynntar þessar afleiðingar vanskilanna.
Lagabreytingar, ákvörðun um slit á félaginu o.fl.
9. gr.
Samþykktum þessum má breyta á aðalfundi félagsins og skal í fundarboði geta þeirra breytinga sem bera á upp. Til þess að breytingar nái fram að ganga þarf 2/3 greiddra atkvæða.
10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til Barnadeildar SAk. Tillaga um slit á félaginu verður því aðeins tekin til afgreiðslu á aðalfundi að hennar hafi verið getið í fundaboði.
Samþykkt á aðalfundi félagsins 19. maí 2016

- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Breytingar á samþykktum félagsins
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar og skoðunarmanna
- Önnur mál