Guðný gæðastjóri Primex mun halda erindi um gæðamál innan Primex en Primex hefur verið með vottun frá ISO 22000 og TÚN-náttúruafurðir frá 2010, árið 2014 fékk Primex HALAL vottun.
Á matseðli dagsins verður grísapurusteik ásamt meðlæti. Við mælum með því að mæta kl. 11:50 – 11:55 þannig að fólki nái að koma sér fyrir og panta mat fyrir klukkan 12. Kaffi í boði félagsins.
Stjórnin skorar á meðlimi Gæðastjórnunarfélagsins að slá nokkrar flugur í einu höggi, borða góðan mat, læra eitthvað nýtt og síðast en ekki síst sýna sig og sjá aðra.
Sjáumst hress!
Kveðja stjórnin