Gæðastjórnunarfélag Norðurlands
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands var stofnað þann 14. maí 2013.
Það voru þrettán fyrirtæki/stofnanir sem komu að stofnun félagsins en í dag eru aðildarfélögin 31 talsins. Þau eru í stafrófsröð:
Akureyrarbær, B. Jensen, Bústólpi, Dögun, Elding, Eyjafjarðarsveit, Fiskistofa, Fjallalamb hf, Gámaþjónusta Norðurlands, Genis, Háskólinn á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Ísfélag Vestmannaeyja-Þórshöfn, Kjarnafæði, MS-Akureyri, Norðlenska, Norðurorka, Norlandair, Pharmarctica, Primex, ProMat Akureyri, Rafeyri, Raftákn, Rammi, Samherji, Sjúkrahúsið á Akureyri, Slippurinn, Sæplast, TDK foil Iceland, ÚA og VMA.
Eins og sjá má á upptalningunni hér að ofan geta öll fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi orðið aðilar að félaginu, óháð stærð þeirra og atvinnustarfsemi
Í stjórn Gæðastjórnunarfélags Norðurlands eru:
Anna Lilja Benidiktsdóttir Formaður Genís, Fjallabyggð
Guðni Hauksson Gjaldkeri Akureyrarbær
Anna Blönddal Ritari Raftákn, Akureyri
Jón Þór Backman Meðstjórnandi Sæplast, Dalvík
Steinþór Þorsteinsson Meðstjórnandi Slippurinn, Akureyri
Varamaður í stjórn: Kristín Hrund Kjartansdóttir - Mjólkursamsalan
Skoðunarmenn: Hanna Dögg Maronsdóttir - Bústólpa og Arnar Björnsson - Becromal
Nánari upplýsingar:
Tilgangur félagsins er að efla tengslanet þeirra er koma að gæðamálum fyrirtækja og stofnanna og stuðla að aukinni fræðslu um gæðamál á svæðinu, t.d. með reglulegum félagsfundum, kynningum og námskeiðum.
Frá því að félagið var stofnað hefur það sýnt sig að þrátt fyrir að við komum úr ólíkum áttum og séum komin mislangt í innleiðingaferlum þá getum við lært mikið hvert af öðru með spjalli og með því að miðla reynslu okkar og þekkingu.
Nokkrir punktar um starfsemi félagsins

- Heimasíða - http://gaedastjornun.weebly.com/
- Netfang – [email protected]
- Póstlisti – Öll aðildarfélög fá sendar upplýsingar um viðburði
- Fréttabréf – Öll aðildarfélög fá sent fréttabréf mánaðarlega
Tilgangur félagsins er að efla tengslanet þeirra er koma að gæðamálum fyrirtækja og stofnanna og stuðla að aukinni fræðslu um gæðamál á svæðinu, t.d. með reglulegum félagsfundum, kynningum og námskeiðum.
Frá því að félagið var stofnað hefur það sýnt sig að þrátt fyrir að við komum úr ólíkum áttum og séum komin mislangt í innleiðingaferlum þá getum við lært mikið hvert af öðru með spjalli og með því að miðla reynslu okkar og þekkingu.
Nokkrir punktar um starfsemi félagsins
- Starfsárið 2014-2015:
- Ráðstefna um gæðamál var haldin í Háskólanum á Akureyri 16. október 2014 og var hún vel sótt. Boðið var upp á átta fróðleg erindi þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
- Eðvald Sveinn Valgarðsson gæðastjóri í Kjarnafæði bauð félögum í heimsókn og fór yfir starfsemi fyrirtækisins og gæðamálin.
- Hanna Dögg Maronsdóttir gæðastjóri MS bauð félögum í heimsókn þar sem hún kynnti fyrirtækið og það gæðastarf sem þar fer fram.
- Í mars bauð félagið uppá „Gæðastund í hádeginu“ þar sem boðið var uppá tvo stutta fyrirlestra tengda gæðamálum.
- Samstarfssamningur við Háskólann á Akureyri undirritaður 26. maí.
- Námskeiðið „Gæðastjórnun – góð stjórnun“. Vikulangt námskeið sem boðið var uppá í samvinnu með Háskólanum á Akureyri. Fyrsta formlega samstarfsverkefni GSFN og HA.
- Starfsárið 2015-2016:
- Í byrjun starfsárs stóð félagið fyrir ferð austur í Alcoa Fjarðarál þar sem gæða-, umhverfis- og öryggismál voru kynnt, en Alcoa er mjög framalega þegar kemur að þessum málaflokkum.
- Tíðkast hefur að aðildafélög skiptist á að bjóða félagsmönnum í heimsókn til sín, 2 slíkar heimsóknir voru á starfsárinu. Að þessu sinni voru það Rafeyri og Becromal sem buðu félagsmönnum í gæðainnlit.
- Grunnnámskeið í verkefnastjórnun var haldið í febrúar. Færri komust að en vildu og þess vegna var ákveðið að bæta við öðru námskeiði í mars. Kennari var Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri Torp ehf.
- Í mars stóð félagið fyrir hálfsdags námskeiði í innri úttektum, kennari var Kristín Björnsdóttir.
- Haldnar voru 3 gæðastundir í hádeginu. Gæðastund fer þannig fram að 1-2 fróðleg erindi tengd gæðamálum eru flutt á meðan gestir fá sér hádegismat. Reiknað er með u.þ.b. klukkustund í dagskrána, þ.e. erindi og umræður.
- Starfsárið 2016-2017:
- Í byrjun starfsárs stóð félagið fyrir ferð til Siglufjarðar þar sem Rammi, Primex og Genis voru heimsótt og kynntu þau gæðamál sín.
- Einnig var staðið fyrir gæðadegi hér á Akureyri þar sem aðildarfélagar fengu að kynnast hvernig Norðlenska, Norðurorka og Bústólpi notast við gæðakerfi í sínum daglega rekstri.
- Haldnar voru 2 gæðastundir í hádeginu. Í nóvember var kynning á gæðastjórnunarkerfi frá Berserker solution. Einnig var gæðastjóri Primex með erindi. Í janúar fengum við Pétur Arason eiganda Manino til Akureyrar þar sem kann kynnti og kannaði áhuga aðildarfélaga á LEAN námskeiði.
- Að auki buðu tvö fyrirtæki aðildarfélögum í heimsókn á þessu starfsári en það voru Sjúkrahúsið á Akureyri og Mjólkursamsalan.
- Ráðstefna um gæðamál í ferðaiðnaði var haldin í maí.
- Starfsárið 2017-2018
- 3 gæðastundir í hádeginu voru haldnar á starfsárinu. 21. sept. var Haraldur Á. Hjaltason framkvæmdastjóri Artemis með erindi um sjálfsmatslíkön sem eru notuð til að bæta árangur í rekstri og Páll Sævar Guðjónsson, sölu- og þjónustufulltrúi hjá Tandur hf og markaðsstjóri eSmiley, kynnti eftirlitskerfið eSmiley. Þann 16. janúar opnaði Gæðstjórnunarfélagið hádegisstundina með kynningu. Guðni Örn Hauksson verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ var að því loknu með erindi um gæðamál hjá Stjórnsýslusviði Akureyrarbæjar og kynnti einnig hvernig sveitafélagið hefur nýtt sér LEAN aðferðafræðina. 15. mars var Einar Gíslason með erindi um Brúnir horse og svo var Karl Jónsson framkvæmdastjóri Lamb Inn með erindi um Lamb Inn.
- Gæðastjórnunarfélag Norðurlands fékk tækifæri til kynna félagið þegar Samtök atvinnurekanda á Akureyri (SATA) var með hádegisfund 13. október.
- Símenntun Háskólans á Akureyri og Gæðastjórnunarfélag Norðurlands stóðu fyrir námskeiðinu „Verkefnastjórnun“ dagana 13. og 14. nóvember. Kennari var Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri Torp ehf.
- Þann 17. nóvember var haldinn gæðadagur á Akureyri, Farið var í heimsókn í ProMat, ÚA og Raftákn.
- Námskeiðið: „Orsakagreining, áhættumiðaðar lausnir“, var haldið 11. apríl á Múlabergi. Námskeiðið var haldið í samstarfi Gæðastjórnunarfélagsins, ProMat Akureyri ehf og Matvælaskólans hjá Sýni. Kennari var Valgerður Ásta Guðmundsdóttir.
- Dagsferð var farin til Húsavíkur í lok starfsársins þann 24. apríl. Byrjað var á að fara í heimsókn í Vaðlaheiðargöng, svo var Fiskeldið á Haukamýri heimsótt. Eftir hádegismat á Gamla Bauk var Norðursigling kynnt og að lokum fórum við upp á Þeistareyki.
- Starfsárið 2018-2019
- Gæðastundin 12.apríl