Lítið bar á viðburðum á vegum GSFN í október. Reynt var að skipuleggja hádegis gæðastund á Greifanum sem átti að höfða til iðn- og byggingarstéttarinnar. Illa gekk að fá einstaklinga innan stéttarinnar til þess að koma og halda erindi og varð því ekkert úr viðburðinum. Í framhaldi tók stjórnin þá ákvörðun að senda ekki út fréttabréf októbermánaðar. „Ef þú hefur ekkert að segja skaltu þegja :) “
Á döfinni
Elfar Alfreðsson tók boði okkur um að kynna gæðastjórnunarkerfi sem Berserker solutions ehf. hefur verið að vinna að seinustu 2 ár. Gæðastjórnunarkerfið er sniðið að byggingariðnaðinum þar sem áherslan er á einfalt utanumhald í kringum verk. Einnig hefur Guðný gæðastjóri Primex samþykkt að halda erindi um gæðamál innan Primex en Primex hefur verið með vottun frá ISO 22000 og TÚN-náttúruafurðir frá 2010, árið 2014 fékk Primex HALAL vottun.
Gæðastundin verður haldin föstudaginn 25. nóv. kl. 12:00 á Greifanum. Stjórnin skorar á meðlimi Gæðastjórnunarfélagsins að slá nokkrar flugur í einu höggi, borða góðan mat, læra eitthvað nýtt og síðast en ekki síst sýna sig og sjá aðra. Fundarboð verða send á meðlimi félagsins í næstu viku.
Hinar og þessar hugmyndir
Stjórnin er í stöðugri hugmyndarvinnu hvað varðar námskeið, erindi og heimsóknir. Við viljum reyna að vera sem fjölbreyttust og þannig að ná til flestra stétta. Hugmyndir sem hafa komið til umræðu eru: vægi gæðamála í pólitík, gæðastjórnun í ferðaþjónustu og hvernig öryggis- og umhverfisstefnur samtvinnast gæðastefnum. Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst fróðlegt, sniðugt og/eða skemmtilegt.
Hafðu samband
Við hvetjum þig til að hafa samband ef þú ert með hugmynd að atburði, ábendingu eða vilt koma einhverju á framfæri. Pósthólfið okkar er [email protected]
Jafnframt bendum við á heimasíðu félagsins (http://gaedastjornun.weebly.com/) og Facebook síðuna Gæðastjórnunarfélag Norðurlands.