Gæðastjórnunarfélag Norðurlands
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands var stofnað þann 14. maí 2013.
Það voru þrettán fyrirtæki/stofnanir sem komu að stofnun félagsins en í dag eru aðildarfélögin 31 talsins. Þau eru í stafrófsröð:
Akureyrarbær, B. Jensen, Bústólpi, Dögun, Elding, Eyjafjarðarsveit, Fiskistofa, Fjallalamb hf, Gámaþjónusta Norðurlands, Genis, Háskólinn á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Ísfélag Vestmannaeyja-Þórshöfn, Kjarnafæði, MS-Akureyri, Norðlenska, Norðurorka, Norlandair, Pharmarctica, Primex, ProMat Akureyri, Rafeyri, Raftákn, Rammi, Samherji, Sjúkrahúsið á Akureyri, Slippurinn, Sæplast, TDK foil Iceland, ÚA og VMA.
Eins og sjá má á upptalningunni hér að ofan geta öll fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi orðið aðilar að félaginu, óháð stærð þeirra og atvinnustarfsemi
Stjórn Gæðastjórnunarfélags Norðurlands
Fimm manna stjórn leiðir starfið. Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi að vori, hver stjórnarmaður til tveggja ára á þann hátt að annað árið eru kosnir tveir en þrír árið eftir. Með því er tryggt að þekking haldist innan stjórnar. Stjórnin velur formann og skiptir með sér verkum að öðru leiti.
Stjórnin hittist í sumarlok og undirbýr starf næsta starfsárs en fundir eru jafnan mánaðarlega eða eftir þörfum en utan þess er reglulegt samráð, m.a. með hjálp samfélagsmiðla.
Nánari upplýsingar:
Tilgangur félagsins er að efla tengslanet þeirra er koma að gæðamálum fyrirtækja og stofnanna og stuðla að aukinni fræðslu um gæðamál á svæðinu, t.d. með reglulegum félagsfundum, á samfélagsmiðlum, kynningum og námskeiðum.
Frá því að félagið var stofnað hefur það sýnt sig að þrátt fyrir að við komum úr ólíkum áttum og séum komin mislangt í innleiðingaferlum þá getum við lært mikið hvert af öðru með spjalli og með því að miðla reynslu okkar og þekkingu.
Nokkrir punktar um starfsemi félagsins
Starfsárið 2019-2020:

- Heimasíða - http://gaedastjornun.weebly.com/
- Facebook - Gæðastjórnunarfélag Norðurlands, lokaður hópur, Félagsmenn
- Facebook - Gæðastjórnunarfélag Norðurlands, samfélag, Opinber kynningarsíða
- Netfang – [email protected]
- Póstlisti – Öll aðildarfélög fá sendar upplýsingar um viðburði
- Fréttabréf – Öll aðildarfélög fá sent fréttabréf mánaðarlega
Tilgangur félagsins er að efla tengslanet þeirra er koma að gæðamálum fyrirtækja og stofnanna og stuðla að aukinni fræðslu um gæðamál á svæðinu, t.d. með reglulegum félagsfundum, á samfélagsmiðlum, kynningum og námskeiðum.
Frá því að félagið var stofnað hefur það sýnt sig að þrátt fyrir að við komum úr ólíkum áttum og séum komin mislangt í innleiðingaferlum þá getum við lært mikið hvert af öðru með spjalli og með því að miðla reynslu okkar og þekkingu.
Nokkrir punktar um starfsemi félagsins
- Starfsárið 2014-2015:
- Ráðstefna um gæðamál var haldin í Háskólanum á Akureyri 16. október 2014 og var hún vel sótt. Boðið var upp á átta fróðleg erindi þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
- Eðvald Sveinn Valgarðsson gæðastjóri í Kjarnafæði bauð félögum í heimsókn og fór yfir starfsemi fyrirtækisins og gæðamálin.
- Hanna Dögg Maronsdóttir gæðastjóri MS bauð félögum í heimsókn þar sem hún kynnti fyrirtækið og það gæðastarf sem þar fer fram.
- Í mars bauð félagið uppá „Gæðastund í hádeginu“ þar sem boðið var uppá tvo stutta fyrirlestra tengda gæðamálum.
- Samstarfssamningur við Háskólann á Akureyri undirritaður 26. maí.
- Námskeiðið „Gæðastjórnun – góð stjórnun“. Vikulangt námskeið sem boðið var uppá í samvinnu með Háskólanum á Akureyri. Fyrsta formlega samstarfsverkefni GSFN og HA.
- Starfsárið 2015-2016:
- Í byrjun starfsárs stóð félagið fyrir ferð austur í Alcoa Fjarðarál þar sem gæða-, umhverfis- og öryggismál voru kynnt, en Alcoa er mjög framalega þegar kemur að þessum málaflokkum.
- Tíðkast hefur að aðildafélög skiptist á að bjóða félagsmönnum í heimsókn til sín, 2 slíkar heimsóknir voru á starfsárinu. Að þessu sinni voru það Rafeyri og Becromal sem buðu félagsmönnum í gæðainnlit.
- Grunnnámskeið í verkefnastjórnun var haldið í febrúar. Færri komust að en vildu og þess vegna var ákveðið að bæta við öðru námskeiði í mars. Kennari var Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri Torp ehf.
- Í mars stóð félagið fyrir hálfsdags námskeiði í innri úttektum, kennari var Kristín Björnsdóttir.
- Haldnar voru 3 gæðastundir í hádeginu. Gæðastund fer þannig fram að 1-2 fróðleg erindi tengd gæðamálum eru flutt á meðan gestir fá sér hádegismat. Reiknað er með u.þ.b. klukkustund í dagskrána, þ.e. erindi og umræður.
- Starfsárið 2016-2017:
- Í byrjun starfsárs stóð félagið fyrir ferð til Siglufjarðar þar sem Rammi, Primex og Genis voru heimsótt og kynntu þau gæðamál sín.
- Einnig var staðið fyrir gæðadegi hér á Akureyri þar sem aðildarfélagar fengu að kynnast hvernig Norðlenska, Norðurorka og Bústólpi notast við gæðakerfi í sínum daglega rekstri.
- Haldnar voru 2 gæðastundir í hádeginu. Í nóvember var kynning á gæðastjórnunarkerfi frá Berserker solution. Einnig var gæðastjóri Primex með erindi. Í janúar fengum við Pétur Arason eiganda Manino til Akureyrar þar sem kann kynnti og kannaði áhuga aðildarfélaga á LEAN námskeiði.
- Að auki buðu tvö fyrirtæki aðildarfélögum í heimsókn á þessu starfsári en það voru Sjúkrahúsið á Akureyri og Mjólkursamsalan.
- Ráðstefna um gæðamál í ferðaiðnaði var haldin í maí.
- Starfsárið 2017-2018:
- 3 gæðastundir í hádeginu voru haldnar á starfsárinu. 21. sept. var Haraldur Á. Hjaltason framkvæmdastjóri Artemis með erindi um sjálfsmatslíkön sem eru notuð til að bæta árangur í rekstri og Páll Sævar Guðjónsson, sölu- og þjónustufulltrúi hjá Tandur hf og markaðsstjóri eSmiley, kynnti eftirlitskerfið eSmiley. Þann 16. janúar opnaði Gæðstjórnunarfélagið hádegisstundina með kynningu. Guðni Örn Hauksson verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ var að því loknu með erindi um gæðamál hjá Stjórnsýslusviði Akureyrarbæjar og kynnti einnig hvernig sveitafélagið hefur nýtt sér LEAN aðferðafræðina. 15. mars var Einar Gíslason með erindi um Brúnir horse og svo var Karl Jónsson framkvæmdastjóri Lamb Inn með erindi um Lamb Inn.
- Gæðastjórnunarfélag Norðurlands fékk tækifæri til kynna félagið þegar Samtök atvinnurekanda á Akureyri (SATA) var með hádegisfund 13. október.
- Símenntun Háskólans á Akureyri og Gæðastjórnunarfélag Norðurlands stóðu fyrir námskeiðinu „Verkefnastjórnun“ dagana 13. og 14. nóvember. Kennari var Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri Torp ehf.
- Þann 17. nóvember var haldinn gæðadagur á Akureyri, Farið var í heimsókn í ProMat, ÚA og Raftákn.
- Námskeiðið: „Orsakagreining, áhættumiðaðar lausnir“, var haldið 11. apríl á Múlabergi. Námskeiðið var haldið í samstarfi Gæðastjórnunarfélagsins, ProMat Akureyri ehf og Matvælaskólans hjá Sýni. Kennari var Valgerður Ásta Guðmundsdóttir.
- Dagsferð var farin til Húsavíkur í lok starfsársins þann 24. apríl. Byrjað var á að fara í heimsókn í Vaðlaheiðargöng, svo var Fiskeldið á Haukamýri heimsótt. Eftir hádegismat á Gamla Bauk var Norðursigling kynnt og að lokum fórum við upp á Þeistareyki.
- Starfsárið 2018-2019:
- Fjórar gæðastundir voru haldnar á Greifanum á Akureyri:
- 1) Í september kynnti Björgvin Filippusson starfsemi Kompáss þekkingarsamfélags en vefsvæðið http://www.kompas.is geymir mikið af gæðaskjölum sem hægt er að fá aðgang að og nýta.
- 2) Í janúar sagði Hulda Rafnsdóttir gæðastjóri SAk og stjórnarmaður í GSFN frá SBAR samskipta- og skráningakerfi til að halda utanum skráningu upplýsinga á heilbrigðisstofnunum. Síðan kynnti Anna Lilja Benidiktsdóttir frá Genis á Siglufirði og stjórnarmaður í GSFN frá gæðastjórnun, sögu og stöðu vöruþróunar hjá félaginu.
- 3) Í febrúar hélt Anna Blöndal frá Raftákn og stjórnarmaður í GSFN erindi um innleiðingu gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði. Einnig kom Elín Blöndal frá Fiskistofu og kynnti CCQ gæðastjórnunarkerfi frá Origo. Það hefur m.a. nýst vel við innleiðingu jafnlaunavottunar.
- 4) Í apríl var gæðastund með þremur fyrirlestrum sem lögðu áherslu á rýni stjórnenda.í gæðastjórnun. Hulda mætti aftur og fjallaði um rekstur gæðastjórnuarkerfa og stjórnendur í stórri stofnun með flókinn og krefjandi rekstur, þ.e. hjá SAk. Sjúkrahúsið er nú komið með ISO 9001-2015 vottun frá Det Norske Veritas. Hrönn Brynjarsdóttir frá Norðurorku fjallaði sérstakega um rýnifundi og hlutverk stjórnenda en félagið er með bæði ISO-9001 og HACCP vottanir. Að lokum kom Jón Garðar Steingrímsson framkvæmdastjóri Genís og sagði frá gæðastjórnunarkerfinu þeirra sem byggt er á PMP stöðum.
- Í október var farið til Grenivíkur: Í fiskvinnslufyrirtækið Gjögur þar sem Ægir Jóhannesson kynnti starfsemina. Í lyfja- og snyrtivöruframleiðslufyrirtækið Pharmatica þar sem Sigurbjörn Magnússon og Margrét Ösp Stefánsdóttir tóku á móti hópnum. Að lokum var Útgerðarsafnið heimsótt og Margrét S Jóhannsdóttir og Oddgeir Ísaksson sýndu okkur safnið..
- Í nóvember var farið í Sólskóga í Kjarnaskógi, í kafaldsbyl og ófærð, en á móti harðsnúnum hópi félaga tók Katrín Ásgeirsdóttir og kynnti sögu Sólskóga og starfsemina í dag.
- Í mars var námskeið í gerð og framkvæmd innri úttekta á stjórnunarkerfum í samstarfi við Símenntun HA. Kjartan J Kárason frá Vottun og Einar Ragnar Sigurðsson frá Staka gerðu kennslugögn og sáu um námskeiðið.
- Fjórar gæðastundir voru haldnar á Greifanum á Akureyri:
Starfsárið 2019-2020:
- Í september var gæðastund á Greifanum þar sem Maria Hedman frá Origo var með kynningu á CCQ (Cloud Compliance & Quality) notendavænni skýjalausn sem Origo hefur verið að þróa. Kerfið á að tryggja skjalfestingu og hlítingu við kröfur ýmissa staðla s.s. ISO staðlanna og jafnlaunavottun. María sýndi virkni kerfisins, viðmót lesborðs og hvernig staðlarnir eru innbyggðir í kerfið. CCQ kerfið er byggt upp á einingum s.s. gæðahandbók, ábendingakerfi fyrir umbætur og breytingar, áhættustjórnun og úttektir svo eitthvað sé nefnt. Kerfið er gert fyrir tölvu, spjaldtölvu og snjallsíma.

- Í október var Slippurinn á Akureyri heimsóttur og þeir Steinþór Þorsteinsson gæða- og öryggisstjóri og Stefán Pálsson verkumsjónarmaður tóku á móti hópnum og kynntu starfsemina. Þar vinna nú milli 150-170 starfsmenn við skipaviðgerðir, málm- og trésmíði, vélaviðgerðir og fleira á alþjóðlegum markaði.
- Í nóvember var farið í dagsferð. Fyrst var Hauganes heimsótt í boði Ektafisks, 80 ára fjölskyldufyrirtækis sem framleiðir og selur útvatnaðan saltfisk í neytendapakkningum til kaupenda á Íslandi og Spáni. Til hliðar við það rekur félagið ferðaþjónustu, m.a. tjaldstæði, heit böð í fjöruborðinu og Baccalá bar veitingahús. Gestgjafi okkar, Elvar Reykjalín framkvæmdastjóri og eigandi, er af þriðju kynslóðinni en sú fimmta er í vinnu þegar tími gefst frá skólanum. Eftir að hafa snætt frábæran hádegisverð á Baccalá bar og þegið að gjöf sýnishorn af framleiðslunni var ekið til Dalvíkur í heimsókn í Sæplast. Þar tók Jón Þór Backman gæðstjóri og stjórnarmaður í GSFN á móti hópnum og sýndi framleiðsluferlið og afurðir. Framleiðsla á hverfisteyptum einöngruðum umbúðakerum er þungamiðjan í framleiðslu Sæplasts sem er í fararbroddi í heiminum í hönnun og framleiðslu á slíkum vörum.
- Starfið eftir áramót var markað af Covid en í mars var sett á opinbert samkomubann sem kom í veg fyrir alla viðburði eftir það. Áður en það kom til framkvæmda var ýmsum viðburðum í þjóðfélaginu aflýst í öryggisskyni eða fólk mætti ekki. Þurfti félagið að því að aflýsa eða fresta öllum viðburðum sem áformaðir voru, það var ekki séð fram á neina mætingu og síðan skall bannið á. Þetta þýddi að ráðstefnu um kulnun, „Þrautseigja er áskorun – ekki brenna út í lífinu“ sem verið hafði lengi í undirbúiningi í samstarfi við Heilsuvernd var frestað fram á næsta starfsár.