Við hjá Gæðastjórnunarfélaginu ásamt PCC verðum með kynningu á efri hæð Greifans í Glerárgötu á fundi Samtaka atvinnurekenda á Akureyri (SATA) þann 12. október kl. 12:00-13:00.
Húsið opnar kl: 11:45 og fundur hefst stundvíslega kl: 12:00. Egill Thoroddsen kynnir Gæðastjórnunarfélag Norðurlands og Erlingur Jónasson öryggis-umhverfis og gæðastjóri PCC segir frá stöðu fyrirtækisins og framtíðaráformum. Að loknu erindi verða umræður. Við hvetjum alla félaga samtakanna til að mæta á þennan áhugaverða fund. Nýjir félagar hjartanlega velkomnir. Súpa og pítsa á 2.000 kr á meðan á fundinum stendur (kaffi innifalið). ÁHÆTTUMAT (RISK ASSESSMENT) Námskeið fyrir alla þá sem þurfa að vinna með áhættumat í sinni vinnu Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði áhættumats, læri að velja mælikvarða og nota áhættumatsfylki við mat á áhættum í hverskonar vinnuferlum. Markmiðið er alltaf að fyrirbyggja mistök og áföll. Þátttakendur vinna með ferla úr eigin gæðakerfum. Efni námskeiðs:
Dags.: 17.október, 2017 Kl: 09:00-16:00 Staður: Greifinn, 2. hæð Verð: kr. 38.500 - * Skráning: Senda tölvupóst á netfangið [email protected] -Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, hádegismatur og léttar veitingar -Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!! * Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið [email protected] Berist afskráning of seint eða alls ekki, áskilur Gæðastjórnunarfélagið sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Gæðastjórnunarfélagið sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara. Námskeið haldið í samvinnu Gæðastjórnunarfélags Norðurlands, ProMat Akureyri ehf og Matvælaskólans hjá Sýni. |
Archives
July 2019
Categories |