| Þann 16. október sl. stóð Gæðastjórnunarfélag Norðurlands fyrir ráðstefnu um gæðamál sem haldin var í Háskólanum á Akureyri. Ráðstefnan gekk vel og er óhætt að segja að góð mæting hafi staðfest þá tilfinningu sem stjórn félagsins hafði varðandi þörf fyrir ráðstefnu sem þessa. Það voru átta fyrirlesarar sem allir fluttu áhugaverð og fjölbreytt erindi og fá þeir, ásamt fundastjóra, enn og aftur bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Hægt er að nálgast hljóðglærur frá ráðstefnunni með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. |
0 Comments
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands býður til ráðstefnu um gæðamál 16. október nk.
Ráðstefnan fer fram í sal M-102 í Háskólanum á Akureyri og er öllum opin. Eins og sjá má hér að neðan er dagskráin fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Aðgangur er ókeypis en tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 14. október Ráðstefnan sett kl. 13.10 13.20 Er gæðastjórnun ekki hluti af góðum rekstri og stjórnun fyrirtækis ? Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku 13:35 Innra eftirlit og gæðakerfi í matvælaiðnaði. Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir 13:55 Kynning á gæðahandbók Kópavogsbæjar Árni Þór Hilmarsson gæðastjóri Kópavogsbæjar 14:15 Öryggisstjórnun á vinnustað (OHSAS 18001) Magnús Matthíasson gæðastjóri EFLU Kaffiveitingar kl. 14:30 14:50 Kröfur um gæðastjórnunarkerfi í byggingareglugerð Bjargey Guðmundsdóttir gæðastjóri Mannvirkjastofnunar. 15:10 SI vottun fyrir þjónustufyrirtæki Árni Páll Jóhannsson framkvæmdastjóri Rafmanna 15:25 Gæðastarf Íslenskra háskóla – Háskólinn á Akureyri Eyjólfur Guðmundsson rektor HA 15:40 Kynning á ISO 9001:2015, hvað er framundan ? Örn Alexandersson, BSI Íslandi Ráðstefnulok kl. 16:00 |
Archives
July 2019
Categories |