Komið sæl
Ánægjulegt er að segja frá því að Gæðastjórnunarfélag Norðurlands verður með gæðastund á Greifanum þann 21. september í hádeginu. Þar verða tvö erindi á dagskrá. Kl. 12:00 - 12:40 "Stóra myndin – leitin að hámarksárangri" Haraldur Á. Hjaltason framkvæmdastjóri Artemis ehf. mun fjalla um hvernig hægt er að nýta sjálfsmatslíkön til að bæta árangur í rekstri. Haraldur hefur unnið sem stjórnunarráðgjafi í yfir 20 ár og hefur unnið með mörgum fyrirtækjum og stofnunum við að þróa og bæta árangur þeirra. Hann mun í erindinu fara yfir hvernig hægt er að tengja saman helstu þætti gæðastarfs með sjálfsmatslíkönum og hvernig þau nýtast við að bæta og vakta árangur. Áhersla verður lögð á EFQM Excellence líkanið og tekin dæmi um bæði notkun þess og árangur frá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum. Kl. 12:40 - 13.:10 "eSmiley" Erindið er á vegum Tandur hf., en eSmiley er efitlitskerfi um meðhöndlun matvæla. Kerfið byggir á áhættugreiningu, HACCP viðmiðum og skráningu eftirlitsaðila. Kerfið er í notkun hjá yfir 9.000 fyrirtækjum í 15 löndum og hefur það nú verið aðlagað að íslenskum markaði. Sýnishorn af eSmiley má finna á eftirfarandi vefslóð: https://drive.google.com/file/d/0B2Y7w62mpj3yTXBtRkQwSGZUVUk/view Endilega sendið póst á [email protected] til að tilkynna þáttöku. Gott er að fá að vita hversu margir frá ykkar fyrirtæki mæta til að geta áætlað fjöldann. Hlökkum til að sjá sem flesta! Bestu kveðjur stjórnin |
Archives
July 2019
Categories |