-september 2015
-Starfsáætlun 2015-2016
Á fundi sínum í lok ágúst setti stjórn saman starfsáætlun. Á döfinni er heimsókn í Alcoa Reyðarfirði, samtalsfundur með iðnaðarmönnum, gæðastundir í hádeginu, heimsókn til aðildarfélaga og námskeið um innleiðingu og uppfærslu í ISO 9001/2015 svo eitthvað sé nefnt. Það er því ljóst að af mörgu er að taka og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Heimsókn í Alcoa Reyðarfirði
Félagið stendur fyrir ferð austur á land þar sem Alcoa Reyðarfirði verður heimsótt. Alcoa er mjög framalega þegar kemur að öryggis- og gæðamálum og því teljum við að fróðlegt væri að fá kynningu um þau mál. Stefnt er að því að ferðin verði í byrjun október (líklega miðvikudaginn 7. okt.) en hún verður nánar auglýst síðar.
Innheimta
Á aðalfundi félagsins í maí sl. var ákveðið að hafa félagsgjaldið óbreytt frá fyrra ári, eða 20.000 kr. á hvert aðildarfélag. Greiðsluseðill fyrir árgjald mun birtast í heimabanka aðildarfélaga og reikningur verða sendur í pósti.
Nýtt aðildarfélag
Bústólpi hefur nú gengið í Gæðastjórnunarfélag Norðurlands en Hanna Dögg, stjórnar-meðlimur GSFN hóf þar störf í ágústmánuði en hún starfaði áður hjá MS og var tengiliður þess við félagið.
Trello – skilvirkari verkefnastjórnun
Félaginu barst erindi þar sem óskað var eftir aðstoð við kynningu á námskeiði sem áætlað er að halda hér á Akureyri í lok október eða byrjun nóvember. Námskeiðið heitir Trello – Skilvirkari verkefnastjórnun og er að töluverðu leyti um skipulagningu og hvernig Trello getur haldið utan um þau fjölmörgu verkefni sem viðkomandi fyrirtæki eða einstaklingur er að vinna. Nánari upplýsingar á www.skipulagning.is
Hafðu samband
Við hvetjum þig til að hafa samband ef þú ert með hugmynd að atburði, ábendingu eða vilt koma
einhverju á framfæri. Pósthólfið okkar er [email protected]
Bestu kveðjur frá stjórn Gæðastjórnunarfélags Norðurlands,
(Eðvald í Kjarnafæði, Gunnur í Norðurorku, Hanna í Bústólpa, Hannes á Rafeyri og Þóra Ýr í ProMat)
The most dangerous phrase in the language is “we’ve always done it this way”
-Grace Hopper-