Sjúkrahúsið á Akureyri hefur í tengslum við gæðavinnu sína skoðað lausnir til utanumhalds á starfsemistölum, mælingum og öðru því er tengist gæðamálum. Mitt í þessari skoðun datt inná gólf hjá okkur ráðgjafi frá Capacent sem kynnti lausn sem heitir Qlik. Gerum langa sögu stutta, við höfum notað fría útgáfu af þessum hugbúnaði síðustu mánuði, fengum Capacent í smá vinnu við að koma okkur í gang og þetta er snilldartól. Núna erum við að taka þetta skrefinu lengra og fáum aftur vinnuheimsókn frá Capacent.
Okkur langar að deila því sem gott hefur reynst og viljum því bjóða ykkur að kíkja á okkur í stutt innlit á mánudaginn klukkan 15. Þá verður ráðgjafinn í vinnu með okkur og við sýnum smá glefsur af því hvað við erum að gera.
Áhugasamir sendi póst á [email protected] til að fá upplýsingar um fundarstað.