Fyrsta sameiginlega verkefnið er vikulangt námskeið um gæðastjórnun hjá Símenntun HA 1.-5. júní nk. þar sem fjallað er um fræðilegan bakgrunn gæðastjórnunar og helstu gæðastjórnunarstaðla með það að markmiði að þátttakendur verði færir um að taka virkan þátt í umbótastarfi og stefnumótun á sviðum gæðastjórnunar sem og að hanna og innleiða gæðastjórnunarkerfi í fyrirtækjum og stofnunum. Kennarar á námskeiðinu koma bæði úr atvinnulífi og fræðasamfélaginu. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga.
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri og Gunnur Ýr Stefánsdóttir formaður Gæðastjórnunarfélags Norðurlands skrifuðu í dag undir samning varðandi samstarf að verkefnum sem lúta að eflingu fræðslu um gæðamál á Norðurlandi. Í því fellst að aðilar eru sammála um að þörf sé á að auka fræðslu um gæðamál og vilja með samkomulaginu skapa vettvang fyrir samstarf HA og GSFN á því sviði. Markmið samningsins er tvíþætt, annars vegar að skapa námsframboð i gæðastjórnun fyrir starfandi aðila í atvinnulífinu og hins vegar að efla tengsl háskólans við atvinnulífið.
Fyrsta sameiginlega verkefnið er vikulangt námskeið um gæðastjórnun hjá Símenntun HA 1.-5. júní nk. þar sem fjallað er um fræðilegan bakgrunn gæðastjórnunar og helstu gæðastjórnunarstaðla með það að markmiði að þátttakendur verði færir um að taka virkan þátt í umbótastarfi og stefnumótun á sviðum gæðastjórnunar sem og að hanna og innleiða gæðastjórnunarkerfi í fyrirtækjum og stofnunum. Kennarar á námskeiðinu koma bæði úr atvinnulífi og fræðasamfélaginu. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga.
0 Comments
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands boðar hér með til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 20. maí 2015 kl. 11:30. Fundurinn fer fram á efri hæð Greifans.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun samstarf við Háskólann á Akureyri vera kynnt með sérstakri áherslu á vikunám í gæðastjórnun sem boðið verður uppá í byrjun júní. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Breytingar á samþykktum félagsins 5. Ákvörðun félagsgjalds 6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna 7. Önnur mál Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja og stofnana eru velkomnir á aðalfundinn og því hvetjum við ykkur til að bjóða samstarfsmönnum ykkar með. Hvert aðildarfélag hefur þó aðeins eitt atkvæði við atkvæðagreiðslu á aðalfundi skv. samþykktum félagsins sem nálgast má hér. B.kv. Stjórnin |
Archives
July 2019
Categories |