Starf Gæðastjórnunarfélags Norðurlands frá áramótum var enn litað af heimsfaraldrinum, en engu að síður hélt félagið uppteknum hætti og stóð fyrir rafrænum fræðsluerindum.
Í janúar var þema um sjálfbærni og ræddi María Stefánsdóttir umhverfisverkfræðingur um breytingastjórnun og Ragnheiður Ólafsdóttir umhverfisstjóri sagði frá vegferð Landsvirkjunar við að uppfylla sjálfbærnistaðla.
Í febrúar voru öryggismál á dagskrá og Ágúst Mogensen fjallaði um hvað einkennir fyrirtæki sem leggja áherslu á öryggismál.
Í mars var gerð örkönnun á áhugasviði meðal félaga varðandi námskeiðahald. Í framhaldi af niðurstöðunum var ákveðið að niðurgreiða fyrir GSFN félaga, grunnnámskeið í verkefnastjórnun á vegum Endurmenntunar HÍ.
Aðalfundur félagsins var síðan haldinn í maí og mun starfið taka sumarhlé, en koma aftur af krafti í haust.
Gleðilegt sumar!