Sælt veri fólkið
Við hjá Gæðastjórnunarfélagi Norðurlands (GSFN) ætlum að byrja starfsárið með gæðastund sem haldin verður föstudaginn 14. september næstkomandi á Greifanum. Gæðastundin byrjar kl. 12:00 og lýkur um kl. 13, en á dagskrá er kynning frá Kompás. Gott er að mæta u.þ.b. 10. mín fyrir 12 og panta sér mat áður en stundin byrjar.
Björgvin Filippusson frá KOMPÁS Þekkingarsamfélaginu verður gestur fundarins. Hann segir okkur frá því samstarfi sem þar er unnið um miðlun hagnýtrar þekkingar til eflingar faglegrar stjórnunar, auk annars ávinnings. Í verkfærakistu KOMPÁS er nú að finna yfir 2.500 skjöl og myndbönd - efni sem kemur víða að eða hefur verið búið til innan Þekkingarsamfélagsins.
Björgvin kemur einnig inná hina þverfaglegu tengingu og framtíðarsýn sem unnið er að með hugmyndafræði KOMPÁS.
Sjá nánar: http://www.kompas.is/
Gott væri að vita u.þ.b. hvað margir mæta upp á matinn að gera, þannig vinsamlegst skráið ykkur á netfangið: [email protected]
Velkomið er að fleiri en einn aðili mæti frá hverju fyrirtæki.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðjur, stjórn GSFN
Kristbjörg Góa Sigurðardóttir Formaður ProMat
Hulda Rafnsdóttir Gjaldkeri Sjúkrahúsið á Akureyri
Anna Blöndal Ritari Raftákn
Guðni Örn Hauksson Meðstjórnandi Akureyrarbær
Anna Lilja Benidiktsdóttir Meðstjórnandi Genís