Fyrsta sameiginlega verkefnið er vikulangt námskeið um gæðastjórnun hjá Símenntun HA 1.-5. júní nk. þar sem fjallað er um fræðilegan bakgrunn gæðastjórnunar og helstu gæðastjórnunarstaðla með það að markmiði að þátttakendur verði færir um að taka virkan þátt í umbótastarfi og stefnumótun á sviðum gæðastjórnunar sem og að hanna og innleiða gæðastjórnunarkerfi í fyrirtækjum og stofnunum. Kennarar á námskeiðinu koma bæði úr atvinnulífi og fræðasamfélaginu. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga.
Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri og Gunnur Ýr Stefánsdóttir formaður Gæðastjórnunarfélags Norðurlands skrifuðu í dag undir samning varðandi samstarf að verkefnum sem lúta að eflingu fræðslu um gæðamál á Norðurlandi. Í því fellst að aðilar eru sammála um að þörf sé á að auka fræðslu um gæðamál og vilja með samkomulaginu skapa vettvang fyrir samstarf HA og GSFN á því sviði. Markmið samningsins er tvíþætt, annars vegar að skapa námsframboð i gæðastjórnun fyrir starfandi aðila í atvinnulífinu og hins vegar að efla tengsl háskólans við atvinnulífið.
Fyrsta sameiginlega verkefnið er vikulangt námskeið um gæðastjórnun hjá Símenntun HA 1.-5. júní nk. þar sem fjallað er um fræðilegan bakgrunn gæðastjórnunar og helstu gæðastjórnunarstaðla með það að markmiði að þátttakendur verði færir um að taka virkan þátt í umbótastarfi og stefnumótun á sviðum gæðastjórnunar sem og að hanna og innleiða gæðastjórnunarkerfi í fyrirtækjum og stofnunum. Kennarar á námskeiðinu koma bæði úr atvinnulífi og fræðasamfélaginu. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
July 2019
Categories |