ÁHÆTTUMAT (RISK ASSESSMENT)
Námskeið fyrir alla þá sem þurfa að vinna með áhættumat í sinni vinnu
Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði áhættumats, læri að velja mælikvarða og nota áhættumatsfylki við mat á áhættum í hverskonar vinnuferlum. Markmiðið er alltaf að fyrirbyggja mistök og áföll. Þátttakendur vinna með ferla úr eigin gæðakerfum.
Efni námskeiðs:
- Kynning, tilgangur og markmið
- Aðferðafræði og líkön sem notuð eru við áhættumat. Áhættuviðmið
- Greining hættu. Umræður, hverjar eru hætturnar í þínu fyrirtæki eða þínu ferli?
- Mælikvarðar á líkur og alvarleika og gerð áhættumatsfylkis (Risk assessment matrix)
- Verkefni 1: Undirbúningur, greining ferils, hættur og mælikvarðar
- Áhættumatsfylki; líkur og afleiðingar – Hvaða gögn er hægt að nota?
- Verkefni 2: Gerð og notkun áhættumatsfylkis
- Úrvinnsla, forvarnir og innleiðing þeirra
- Verkefni 3: Forvarnir og innleiðing þeirra
- Úrbótaáætlun og orsakagreining (stutt kynning)
Dags.: 17.október, 2017
Kl: 09:00-16:00
Staður: Greifinn, 2. hæð
Verð: kr. 38.500 - *
Skráning: Senda tölvupóst á netfangið [email protected]
-Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, hádegismatur og léttar veitingar
-Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið [email protected] Berist afskráning of seint eða alls ekki, áskilur Gæðastjórnunarfélagið sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Gæðastjórnunarfélagið sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.
Námskeið haldið í samvinnu Gæðastjórnunarfélags Norðurlands, ProMat Akureyri ehf og Matvælaskólans hjá Sýni.