Komið þið sæl
Vegna óviðráðanlegra orsaka getur Lamb Inn ekki verið með okkur á gæðastundinni á morgun (þriðjudaginn 16. janúar) og því ætlum við að vera á Greifanum á „stássinu“ eins og stundum áður. Við mælum með því að fólk mæti um kl. 11:50 og panti sér mat. Gæðastjórnunarfélag Norðurlands mun opna gæðastundina með stuttri kynningu en svo mun Guðni Örn Hauksson verkefnastjóri á stjónsýslusviði hjá Akureyarbæ flytja erindi líkt og sagði í síðasta pósti. Vegna þessara breytinga væri gott að vita hvort einhverjir munu forfallast eða bætast í hópinn svo þið megið endilega svara þessum pósti og láta vita. Hittumst hress á Greifanum á morgun! Bestu kveðjur stjórnin Nokkrar myndir frá gæðadeginum sem haldinn var á Akureyri þann 17. nóvember. Farið var í Promat, ÚA, Raftákn og Múlaberg. Þessi flotti hópur sótti verkefnastjórnunarnámskeið sem Símenntun Háskólans á Akureyri og Gæðastjórnunarfélag Norðurlands héldu saman dagana 13. og 14. nóvemer. Þorgeir Pálsson sjávarútvegsfræðingur, MBA og framkvæmdastjóri Thorp ehf. sá um kennsluna.
Við hjá Gæðastjórnunarfélaginu ásamt PCC verðum með kynningu á efri hæð Greifans í Glerárgötu á fundi Samtaka atvinnurekenda á Akureyri (SATA) þann 12. október kl. 12:00-13:00.
Húsið opnar kl: 11:45 og fundur hefst stundvíslega kl: 12:00. Egill Thoroddsen kynnir Gæðastjórnunarfélag Norðurlands og Erlingur Jónasson öryggis-umhverfis og gæðastjóri PCC segir frá stöðu fyrirtækisins og framtíðaráformum. Að loknu erindi verða umræður. Við hvetjum alla félaga samtakanna til að mæta á þennan áhugaverða fund. Nýjir félagar hjartanlega velkomnir. Súpa og pítsa á 2.000 kr á meðan á fundinum stendur (kaffi innifalið). |
Archives
July 2019
Categories |