Enn eru aðstæður í samfélaginu óhagstæðar samfundum í raunheimum. En GSFN lætur það ekki á sig fá og við hefjum nýtt ár með rafrænum fyrirlestri á Zoom þann 20. janúar kl. 13. Þar munu María Stefánsdóttir umhverfisverkfræðingur hjá Mannvit og Ragnheiður Ólafsdóttir umhverfisstjóri Landsvirkjunar fjalla um sjálfbærni og breytingastjórnun í rekstri fyrirtækja. Missið ekki af því!
Vakin er athygli á að hægt er að skrá sig í félagið hér á síðunni.