Innifalið í þáttökugjaldi er:
- Námskeiðisgjald
- Námskeiðisgögn
- Morgunkaffi, smurt og ávextir
- Hádegisverður
- Eftirmiðdagskaffi og sætur biti
Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Örn Alexandersson frá BSI á Íslandi. Að námskeiði loknu fá nemendur þáttökuskírteini frá BSI.
Námskeiðið er orðið fullt en vinsamlegast látið vita hér ef þið hafið áhuga á að láta skrá ykkur á biðlista.
Þess ber að geta að sama námskeið kostar 89.000 hjá BSI í Reykjavík og við þann kostnað bætist kostnaður vegna ferða og ferðatíma, gistingar og uppihalds. Félagið nær að halda námskeiðið á sama standard, hér á Akureyri, fyrir 75.000kr pr. mann.
Enda er það eitt af aðalmarkmiðum félagsins að stuðla að aukinni fræðslu um gæðamál hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu og ekki er verra ef það næst fram hagræði í kostnaði og tíma eins og í þessu tilfelli.