Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi.
Auk þess að skýra uppbyggingu staðlanna, notkun og kröfurnar í ISO 9001, verður farið yfir tengsl staðlanna og gæðastjórnunarkerfis samkvæmt ISO 9000. Þátttakendur leysa hópverkefni í gerð verklagsreglna. Nánari upplýsingar hér