Ákvörðun hefur verið tekin að fella það inn í stærra námskeið sem haldið verður fyrstu vikuna í júní (1.-5. júní) í Háskólanum á Akureyri en námskeiðið er fyrsta formlega samstarfsverkefni Gæðstjórnunarfélags Norðurlands og Háskólans á Akureyri.
Um er að ræða fimm daga námskeið þar sem m.a. verður komið inná eftirfarandi atriði:
- Fyrirtækið og umhverfi þess (stefnumótun, skipulag, sjálfsmat o.fl.)
- Umbótaferla (tæki og tól)
- Gæðahandbók, innri úttektir, rýni stjórnenda o.fl.
- Umhverfis- og öryggismál
- Markaðssetningu gæðastjórnunar innan fyrirtækis
Verið er að leggja lokahönd á undirbúning og tryggja fyrirlesara.
Vonir standa til að námskeiðið verði auglýst í lok þessarar eða byrjun næstu viku en við hvetjum áhugasama til að taka dagana frá.
B.kv.
Stjórnin