Vinsamlegast látið vita fyrir kl 15:00 þriðjudaginn 02.september, með því að svara þessum pósti hvort þið hefðuð áhuga á þáttöku á slíku námskeiði og hversu margir þáttakendur kæmu frá ykkur.
Þetta ítarlega námskeið hjálpar þátttakendum að fá skilning á öllum þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla fyrir ISO 9001. Farið verður yfir öll helstu grunnatriði og þær aðferðir sem ættu að vera notaðar í upphafi þegar ISO 9001 staðallinn er tekin upp.
Fyrir hverja er námskeiðið?
- Fyrir þá sem vilja auka skilning sinn á innleiðingarferli ISO 9001 gæðastjórnunarkerfis
Þetta námskeið tryggir að notaðar séu margreyndar og sannprófaðar aðferðir fyrir alla þá sem innleiða ISO 9001. Að nota ISO 9001 er að jafnaði arðvænleg fjárfesting fyrir fyrirtæki. Ágóði fyrirtækja felst m.a. í auknu trausti meðal starfsmanna, auknum skilningi og aðstoðar fyrirtæki við að komast hjá kostnaðarsömum mistökum.
Efnisþættir námskeiðs
- Hugmyndafræði og kröfur ISO 9001:2008
- Uppbygging gæðastjórnunarkerfis
- Skilgreining ábyrgða fyrir gæðastjórnunarkerfi
- Skoða núverandi rekstur og innleiðingu nýrra aðferða
- Skráning gæðaskjala og afhverju gæðaskráning er mikilvæg
- Framsetning upplýsinga á sem bestan hátt
- Skipulagning skjala og skjalastýring
- Skipulagning innleiðingarferlisins á áhrifaríkan hátt
- Undirbúningur fyrir úttektir
- Skrif vinnuleiðbeininga, gæðastefnu og verklagsreglna
- Viðhald og umbætur á gæðastjórnunarkerfinu
Lengd námskeiðs: 2 dagar, kennt frá 09:00 – 16:30
Leiðbeinandi: Örn Alexandersson frá BSI
Nemendur fá þátttökuskírteini frá BSI að námskeiði loknu.