HA fékk fyrstu niðurstöður úr úttektinni strax að henni lokinni og þar segir að úttektarnefndin beri traust (confidence) til háskólans, bæði hvað varðar akademískt starf og námsumhverfi nemenda. Það er besta einkunn sem háskóli getur fengið við fyrstu úttekt samkvæmt núverandi kerfi.
Jafnframt eru tíunduð ýmis atriði þar sem háskólinn hefur sýnt fram á góða starfshætti t.d. varðandi framboð í fjarkennslu, gæðastarf, húsnæði og námsumhverfi, markaðsstarf, bókasafnsþjónustu, öflun upplýsinga með könnunum, virkni nemenda í starfsemi háskólans og síðast en ekki síst fjármálastjórn. Auk þess að tíunda það sem vel er gert bendir sérfræðinganefndin á atriði til umbóta sem unnið verður að á næstu misserum.
Heildarskýrsla sérfræðinganefndarinnar verður gefin út opinberlega í haust en ljóst má vera að starfsfólk og nemendur HA eru stolt yfir góðum árangri.
Gæðastjórnunarfélag Norðurlands óskar Háskólanum á Akureyri til hamingju með þennan góða árangur.