Ánægjulegt er að segja frá því að Gæðastjórnunarfélag Norðurlands verður með gæðastund á Greifanum þann 21. september í hádeginu.
Þar verða tvö erindi á dagskrá.
Kl. 12:00 - 12:40 "Stóra myndin – leitin að hámarksárangri"
Haraldur Á. Hjaltason framkvæmdastjóri Artemis ehf. mun fjalla um hvernig hægt er að nýta sjálfsmatslíkön til að bæta árangur í rekstri.
Haraldur hefur unnið sem stjórnunarráðgjafi í yfir 20 ár og hefur unnið með mörgum fyrirtækjum og stofnunum við að þróa og bæta árangur þeirra. Hann mun í erindinu fara yfir hvernig hægt er að tengja saman helstu þætti gæðastarfs með sjálfsmatslíkönum og hvernig þau nýtast við að bæta og vakta árangur. Áhersla verður lögð á EFQM Excellence líkanið og tekin dæmi um bæði notkun þess og árangur frá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.
Kl. 12:40 - 13.:10 "eSmiley"
Erindið er á vegum Tandur hf., en eSmiley er efitlitskerfi um meðhöndlun matvæla.
Kerfið byggir á áhættugreiningu, HACCP viðmiðum og skráningu eftirlitsaðila. Kerfið er í notkun hjá yfir 9.000 fyrirtækjum í 15 löndum og hefur það nú verið aðlagað að íslenskum markaði.
Sýnishorn af eSmiley má finna á
eftirfarandi vefslóð: https://drive.google.com/file/d/0B2Y7w62mpj3yTXBtRkQwSGZUVUk/view
Endilega sendið póst á [email protected] til að tilkynna þáttöku. Gott er að fá að vita hversu margir frá ykkar fyrirtæki mæta til að geta áætlað fjöldann.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Bestu kveðjur stjórnin