Þann 22. september var farið til Siglufjarðar þar sem heimsótt voru fjögur fyrirtæki, rækjuvinnsla Ramma, Genis, Primex og brugghúsið Segull 67. Almennur áhugi á súkkulaði leiddi til skyndiheimsóknar á súkkulaðikaffihús Fríðu. Heimsóknirnar tókust einstaklega vel og var fólk almennt mjög ánægt með ferðina en 18 einstaklingar tóku þátt þann dag. Viljum við þakka Þóru Ýri hjá Ramma, Ólafi frá Primex, Jóni Garðari hjá Genis og Segli 67 kærlega fyrir móttökunar.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
July 2019
Categories |