Í október var haldin Gæðastund á Greifanum og ákvað félagið að bjóða fundargestum í mat til að halda upp á að fundurinn var í raunheimum. Á fundinn kom Jón Fannar Kolbeinsson frá Jafnréttisstofu og útskýrði jafnlaunavottun, markmið hennar með tilliti til jafnréttislaga og hver aðkoma Jafnréttisstofu er að innleiðingu vottunarinnar. Fram kom að frestur fyrirtækja til að öðlast vottunina fer eftir fjölda starfsfólks, en minnstu fyrirtækin (25 - 89 starfsmenn) hafa frest til loka árs 2022, meðan þau stærri eru flest að renna út á tíma eða þegar runnin út. Vottunina þarf að endurnýja á þriggja ára fresti og aðkoma Jafnréttisstofu er að veita heimild til að nota Jafnlaunamerkið. Jón Fannar fór yfir lög og reglur í tengslum við jafnlaunavottunina og svaraði spurningum. Erindið var upplýsandi og umræður líflegar.
Í nóvember fengum við Sigríði Ólafsdóttur hjá Mögnum til að halda fjarerindi um tímastjórnun og hugarfar sem hentugt er að tileinka sér í tengslum við að skipuleggja sinn vinnutíma. Erindið vakti einnig góða umræðu og hugleiðingar.
Í lok nóvember kom svo Olga Ýr Björgvinsdóttir á fjarfund og kynnti sprotafyrirtækið Arctic Therapeutics, sem er lyfjaþróunarfyrirtæki á Akureyri og vinnur að þróun lyfs gegn arfgengri heilablæðingu. Fyrirtækið býður einnig upp á Covid-19 hraðprófaþjónustu og hefur sú starfsemi heldur betur undið upp á sig að undanförnu. Olga fjallaði einnig um helstu kröfur ISO 15189 staðalsins (fyrir rannsóknastofur í læknisfræði), en Arctic Therapeutics hefur hafið vottunarferli skv. þeim staðli.
GSFN tekur nú starfshlé fram yfir áramót, en við stefnum ótrauð á nýja atburði með hækkandi sól!
Gleðileg jól og gæðaríkt nýtt ár!