fréttabréf_mars_2019.pdf |
Í bréfinu er fjallað um námskeið í innri úttektum sem haldið var í samvinnu við símenntun HA, væntanlegan aðalfund og fleira.
0 Comments
Því miður verðum við að fresta gæðaferð, sem til stóð að fara í, til Sauðárkróks á morgun vegna ónógrar þátttöku.
Við reynum aftur síðar og auglýsum þá aftur. Kveðjur Stjórn GSFN Þriðjudaginn 19. mars verður haldið námskeið í innri úttektum gæða- og stjórnunarkerfa í Háskólanum á Akureyri. Námskeiðið er ætlað þeim sem koma að innri úttektum og felst í fræðslu, sýnidæmum og verklegum æfingum.
Námskeiðið er haft hér fyrir norðan að frumkvæði félagsins og verður haldið á einum degi frá 8:30 til 17:00. Verð er 53.000,- fyrir aðildafélaga (56.500 fyrir aðra) en með þessu fyrirkomulagi sparast bæði tími og ferðakostnaður. Við bendum á fræðslusjóði stéttarfélaga með styrki. Nánari upplýsingar og skráning er hér: https://simenntunha.is/namskeid/innri-uttektir-fyrir-stofnanir-og-fyrirtaeki/?planned_course_id=101503 Í fréttabréfinu er sagt frá gæðastund 18. febrúar þar sem Anna Blöndal frá Raftákn sagði frá gæðastjórnarkerfum í byggingariðnaði. Einnig kynnti Elín Björg Ragnarsdóttir frá Fiskistofu CCQ kerfið sem nýtist vel til að byggja gæðamálin á. Það hefur m.a. nýst þeim til að halda utan um ferla jafnlaunavottunar. Fiskistofa er nýr aðili að Gæðastjórnunarfélaginu og bjóðum við þau velkomin í hópinn.
Gæðastund á Greifanum mánudaginn 18.febrúar
Sælir félagar Því miður varð að fresta námskeiði í innri úttektum sem stóð til að halda núna í febrúar í samvinnu við Háskólann á Akureyri, til 19. mars. Það verður auglýst nánar fljótlega. Því var gripið til þess ráðs að skella á gæðastund sem haldin verður mánudaginn 18. febrúar næstkomandi á Greifanum. Gæðastundin byrjar kl. 12:00 og lýkur um kl. 13. Á dagskrá eru tvær kynningar, frá Fiskistofu og frá Raftákni. Gott er að mæta u.þ.b. 10. mín. fyrr og panta sér mat áður en stundin byrjar. Elín Björg Ragnarsdóttir frá Fiskistofu mun kynna fyrir okkur CCQ gæðastjórnunarkerfi sem heldur utan um þá gæðahandbók sem Fiskistofa er að nota. Fiskistofa tók nýlega upp þetta kerfi og er nú í gangi vinna við að yfirfara og flytja alla ferla úr eldra kerfi yfir í það nýja. Hefur kerfið nýst þeim mjög vel m.a. við að halda utan um ferla jafnlaunavottunar, en Fiskistofa var að ljúka öðru stigi hennar. Anna Fr. Blöndal frá Raftákni mun kynna fyrir okkur áhrif gæðastjórnunarkerfa á hönnunarstofu í byggingariðnaði, en krafa á hönnuði og hönnunarstjóra að vera með skráð og úttekið gæðastjórnunarkerfi kom inn með Lögum um mannvirki 2010. Raftákn er búið að vera með vottað ISO 9001 gæðastjórnunarkerfi síðan 2009. Við þurfum að vita hvað margir mæta í mat svo vinsamlegast skráið því fjölda þeirra sem koma frá ykkar fyrirtæki inn í google sheet skjalið: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1_dLHMTTvJa2BcZ5a2rq0EEfzuyKeYuwxRZP3vcWDdw/edit?usp=sharing eða sendið tölvupóst á netfangið: [email protected] Velkomið er að fleiri en einn aðili mæti frá hverju fyrirtæki. Hlökkum til að sjá ykkur. Kveðjur, stjórn GSFN Fréttabréfið er komið út. Þar segir m.a. frá gæðastund sem haldin var á Greifanum þann 17. janúar og námskeiði um innri úttektir sem fyrirhugað er í febrúar.
|
Archives
July 2019
Categories |