fundarstjóri og Anna Fr. Blöndal ritari fundar. Góa kynnti skýrslu stjórnar, þar sem farið var yfir
starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Eins og fram hefur komið í fréttabréfum vetrarins hefur
starfsemin verið fjölbreytt og víða komið við.
Guðni Örn Hauksson lagði svo fram reikninga í fjarveru Huldu Rafnsdóttur gjaldkera. Reikningar
voru samþykktir samhljóða.
Kristbjörg Góa og Hulda gengu úr stjórn eftir tveggja ára setu og í stað þeirra voru kjörnir þeir Jón
Þór Backman hjá Sæplast og Steinþór Þorsteinsson hjá Slippnum Akureyri. Einnig hætti Hannes
Garðarsson sem skoðunarmaður reikninga og Hanna Dögg Maronsdóttir tekur við því hlutverki.
Varamaður í stjórn var kosin Kristín Hrund Kjartansdóttir hjá MS.
Nýja stjórnin f.v.: Steinþór Þorsteinsson, Anna Fr. Blöndal, Guðni Hauksson, Anna Lilja Benidiktsdóttir og Jón Þór Backman.