Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun samstarf við Háskólann á Akureyri vera kynnt með sérstakri áherslu á vikunám í gæðastjórnun sem boðið verður uppá í byrjun júní.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Breytingar á samþykktum félagsins
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
7. Önnur mál
Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja og stofnana eru velkomnir á aðalfundinn og því hvetjum við ykkur til að bjóða samstarfsmönnum ykkar með. Hvert aðildarfélag hefur þó aðeins eitt atkvæði við atkvæðagreiðslu á aðalfundi skv. samþykktum félagsins sem nálgast má hér.
B.kv.
Stjórnin